send link to app

Lifandi Landslag app for iPhone and iPad


4.2 ( 4912 ratings )
Travel Education
Developer: Trausti Dagsson
Free
Current version: 1.1.1, last update: 7 years ago
First release : 02 Jul 2015
App size: 25.92 Mb

Lifandi landslag er smáforrit sem gerir ferðina um Skagafjörð enn áhugaverðari! Undir hverjum steini leynast sögur, bæði þjóðsögur og sögur af hetjum fornsagnanna. Þær leiða þig um sögustaði sína og kynna Skagafjörð eins og þú hefur aldrei séð hann áður. Á sama stað finnurðu einnig upplýsingar um helstu afþreyingu og þjónustu á svæðinu – Allt sem þú þarft í einu appi!

Lifandi landslag staðsetur símann, og sýnir þér kort af Skagafirði. Þar verða merktir inn allir sögustaðir sem svæðið hefur upp á að bjóða sem tengjast þjóðsögum, Grettissögu og Sturlungu (í samvinnu við verkefnið Á Sturlungaslóð). Auk þess verður öll helsta þjónusta og afþreying sem stendur til boða merkt inn á kortið, svo þú veist nákvæmlega hvað er langt í næsta hest eða hamborgara!
Staðirnir verða merktir á kortið, þú ýtir á merkið og færð upplýsingar um þjónustuna, eða velur hvort þú vilt lesa eða hlusta á söguna. Svo slakar þú á og nýtur alls sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða!

Lifandi landslag er ný og spennandi leið til að kynnast þeim menningararfi sem Skagafjörður hefur upp á að bjóða, og er það eina sem þú þarft á ferð þinni um Skagafjörð!